Heimskviður

194 - Jólin komin í Venesúela og stóra Lego-slysið

Saga Edgar Ochoa er ein nærri átta milljóna sem flóttamenn frá Venesúela hafa segja af ástandinu í heimalandinu. Hann kom til Íslands fyrir um tveimur árum og hlaut íslenskan ríkisborgararétt nýverið. Hann fór til Venesúela í sumar og tók þátt í forsetakosningum, þar sem kjörstjórn lýsti Nicolas Maduro sigurvegara. Þriðja kjörtímabil hans er nýhafið og segja stjórnartíð hans hafi verið ansi stormasöm. Róbert Jóhannsson skoðaði sögu Venesúela og þá staðreynd júlunum var hleypt af stokkunum þar fyrr en áður til reyna friða ósátta íbúa landsins.

Fimm milljón Legó-kubbar eða stykki úr Legó-leikfangasettum enduðu í sjónum austur af Bretlandi í febrúar 1997, þegar flutningaskipið Tokyo Express fékk á sig brotsjó og meira en sextíu vörugámar féllu útbyrðis. Næstu vikur og mánuði fóru allskonar Legó hlutir finnast á ströndum í suðvesturhluta Bretlands og víðar, og reyndar eru þeir enn dúkka upp. Stóra Legóslysið, eins og þetta óhapp hefur verið kallað, hefur ekki aðeins snert taugar þeirra sem ólust upp við leika sér Legói heldur líka beint enn frekar athyglinni þeim milljónum tonna af plasti sem rekur um heimsins höf. Björn Malmquist segir okkur frá.

Frumflutt

12. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,