264 - Staðan á Kúbu og réttarhöldin sem allir eru að tala um
Íbúar á Kúbu lifa við alvarlegan eldsneytisskort. Nú er sjóðheitt sumarið senn á enda þar sem lítið var hægt að treysta á loftræstingu. Landið sætir lengstu viðskiptaþvingunum í sögunni…
Við sendum út Heimskviðuþátt númer 250 í mars og héldum upp á það með því að segja örsögur utan úr heimi. Í tilefni dagsins sögðum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en grófum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það.
Við fjölluðum um hundakallinn Lars Lökke Rasmussen, badmintonmeistarann Jens Frederik Nielsen, áhrifavald frá Gaza, næsta leiðtoga Norður-Kóreu og mann sem hefur verið kallaður George Clooney seðlabankanna.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.