Heimskviður

193 - Norðurlöndin, Líbanon og lögregluaðgerð

Norðurlöndin eru ekki eins náin og þau hafa verið og Grænlendingar og Færeyingar eru fúlir með vera út undan í norrænu samstarfi. Aukin áhersla hefur verið síðustu ár á Norðurslóðir og málefni Grænlands og því skýtur skökku við Grænlendingar hafi sagt sig frá norrænu samstarfi. Ekki er víst hvort Múte B. Egede, forsætisráðherra Grænlands, komi á Norðurlandaráðsþingið sem verður haldið í Reykjavík í lok þessa mánaðar. En þar á reyna stilla til friðar í norrænu fjölskyldunni.

Við fjöllum líka um Líbanon og afleiðingar allsherjarstríðs Ísraels og Hezbollah. Ef það dregst á langinn gæti það haft djúpstæð áhrif á Líbanon og Seerwan Shawqi, sem hefur unnið flóttamannamálum í Líbanon, segir svo geti farið landið verði ekki til í þeirri mynd sem við þekkjum núna.

lokum er það svo einn vinsælasti sumarsmellurinn í kvikmyndahúsum hér á landi. Spennumyndin Trap. Þó söguþráðurinn í anda annarra spennumynda er það kannski á vitorði færri innblásturinn var ein umfangsmesta lögregluaðgerð sem skipulögð hefur verið í Washington. Fleiri en 100 voru handteknir á einum degi árið 1985, en þetta er enn þann dag í dag ein fjölmennasta fjöldahandtaka í sögu Bandaríkjanna. Og það sem gerir þetta kannski enn áhugaverðara er margir af lögreglumönnunum sem tóku þátt í aðgerðinni voru klæddir eins og klappstýrur og lukkudýr.

Frumflutt

5. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,