Heimskviður

221 - Svalasti einræðisherrann og börn í kastljósi samfélagsmiðla

Forseti El Salvador, Nayib Bukele, segist vera svalasti einræðisherra heims. Hann hefur gjörbylt landinu á örfáum árum og nýtur fádæma vinsælda. Hann samdi við glæpagengin sem höfðu mikil áhrif og ítök í El Salvador og hefur gert landið með þeim öruggari í heimi, en þar var morðtíðni með því allra hæsta sem gerist. En þetta voru engar töfralausnir. Því er koma í ljós hvað þessir samningar fólu í sér. Bukele hefur fangelsað tugi þúsunda á síðustu árum í nýju risastóru fangelsi sem nefnist CECOT og þannig liggja leiðir hans og Donalds Trump saman. Trump er byrjaður senda mörg hundruð innflytjendur í fangelsi í El Salvador, án þess mál þeirra séu tekin fyrir í Bandaríkjunum. Trump er mikill aðdáandi Bukele og segja hann dáist einræðistilburðunum, en báðum hættir þeim til ganga of langt til þess markmiðum sínum og teygja lög og reglur í allar áttir.

Börn, áhrifavaldar og samfélagsmiðlar eru umfjöllunarefni nýrrar heimildarmyndar, í þremur hlutum, sem er á streymisveitunni Netflix. Í þáttunum skyggnast áhorfendur inn í margar hliðar samfélagsmiðlanotkunar barna, hvaða áhrif miðlarnir geta haft á líf þeirra og jafnvel hvaða siðferðislegu spurningar vakna í oft grimmum raunveruleika. Hvenær ganga foreldrar of langt í nýta börn sín til afla tekna á samfélagsmiðlum og hvenær er friðhelgi barna jafnvel stefnt í hættu með myndbirtingum og fréttum? Því það hefur ekki alltaf góð áhrif á börn vera í kastljósinu, hvort sem þau biðja um það sjálf eða verða það í gegnum foreldra sína.

Frumflutt

17. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,