Heimskviður

216 - Börnin á Gaza og byltingin í Súdan

Mannúðarvandi er hvergi meiri en á Gaza og í Súdan. Við förum þangað í Heimskviðum í dag. Helmingur þeirra rúmlega tveggja milljóna sem hafast við á Gaza eru börn. Fleiri en 50 þúsund hafa verið drepin á þeim átján mánuðum sem hafa liðið frá dagsetningunni örlagaríku, 7.október 2023. Greinendur og mannréttindasamtök telja reyndar mun fleiri séu látin, líklega séu þúsundir líka undir rústunum sem finna um alla Gaza-ströndina. Fleiri en 15 þúsund hinna látnu eru börn og Gaza er því líklega hættulegasti staður jarðar fyrir börn.

Svo förum við til Kartúm, höfuðborgar Súdans, sem var um mánaðamótin frelsuð úr höndum hersveita RSF sem náðu þar yfirráðum 2023. Hershöfðinginn Abdel Fattah al-Burhan hefur síðustu daga farið sigri hrósandi um borgina og sagt núna hún loksins frjáls. Og íbúum sem hafa síðustu mánuði og misseri búið við ofríki og umsátur RSF-sveitanna er létt. En það breytist líklega ekki mikið fyrr en valdasjúkir hershöfðingjar gefa eftir völdin og skref í átt lýðræði verða tekin. Annars verður bara meira af einræði, ofbeldi og kúgun.

Frumflutt

12. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,