Heimskviður

235 - Gleymda stríðið og svanasöngur Downton Abbey

Við rýnum í stríðsátökin í Súdan og hrottalegar aftökur sem þeim tengjast í Heimskviðum í dag. Það er stundum kallað gleymda stríðið því fjölmiðlar fjalla mun minna um það en önnur sem hafa geisað síðustu ár og áratugi. Það er þrátt fyrir þar hafa á annað hundrað þúsund verið drepin, tugmilljónir þurft reiða sig á neyðaraðstoð og eina mestu hungursneyð síðustu áratuga. Alþjóðaglæpadómstóllinn hefur til skoðunar hvort hrottalegar fjöldaaftökur RSF-sveitanna í borginni el-Fasher séu stríðsglæpir eða glæpir gegn mannkyni. Talið er liðsmenn þeirra hafi drepið hátt í tvö þúsund manns í borginni síðustu vikur. Oddur Þórðarson ætlar skoða síðustu vendingar, meðal annars vopnahléssamkomulag sem bandaríkjastjórn kynnti í vikunni.

Svo ætlum við kveðja Downton Abbey. geta kvikmyndagestir séð svanasöng Downton Abbey í kvikmyndahúsum. Þriðju og síðustu myndina sem kemur í kjölfar feykivinsælla sjónvarpsþáttaraða um Crowley fjölskylduna og aðra íbúa á öllum hæðum Downton Abbey. Þættirnir hafa unnið alþjóðleg verðlaun um allan heim, slegið áhorfsmet og persónurnar eiga sér margar fastan sess í hjörtum aðdáenda. Um þetta eru allir viðmælendur Birtu Björnsdóttur sammála, en hún skoðaði þættina vinsælu, tilurð þeirra og arfleið.

Frumflutt

8. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,