Heimskviður

196 - Börn í fangelsum í Rússlandi og ris og fall Victoria's Secret

Talið er í fyrra hafi hátt í 13 þúsund börn fengið fangelsisdóma í Rússlandi og fleiri en 100 börn eru á lista rússneskra yfirvalda yfir hryðjuverkamenn. Rússneski blaðamaðurinn Daria Kozlova skrifaði grein fyrir ruv.is um þessi börn. Birta Björnsdóttir ræddi við Dariu um fangelsuðu börnin. Við ræðum sömuleiðis við Önnu Lúðvíksdóttur, framkvæmdastjóra Amnesty á Íslandi. Amnesty International gaf út skýrslu í vor um aðgerðir stjórnvalda gegn börnum sem eru nýta sér tjáningarfrelsi sitt, allt frá því taka þátt í mótmælum yfir í teikna myndir í skólabækurnar sínar til stuðnings Úkraínu eða gegn stríði eða gegn Pútín. Skýrslan tekur saman upplýsingar um hvernig rússnesk stjórnvöld ganga fram gegn þessum börnum og foreldrum þeirra.

Undirfatafyrirtækið Victoria's Secret hefur verið í mótbyr síðan 2018 og ekki ástæðulausu. Fyrirækið hefur verið sakað um illa framkomu við fyrirsætur og sýna aðeins ofurgrannar og ungar konur í auglýsingum sínum og á tískusýningum. Þá var eigandi fyrirtækisins árum saman náinn vinur kynferðisglæpamannsins Jeffrey Epstein og það hefur vakið ýmsar spurningar. En ástæða þess við erum rifja þetta upp er í síðustu viku hélt fyrirtækið stóra tískusýningu í fyrsta sinn í sex ár. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.

Frumflutt

26. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,