Heimskviður

31 | Öfgar á tímum COVID19, áhrif veirunnar á umhverfið og Inter Miami

Í þrítugasta og fyrsta þætti Heimskviðna fjalla Guðmundur Björn og Birta um ólík viðbrögð þjóðarleiðtoga um veröld víða við útbreiðslu kórónuveirunnar COVID19. Forseti Filippseyja vill skjóta þá sem rjúfa sóttkví, en forseti Brasilíu segir fólki hundskast í vinnuna. Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands er nánast orðinn einvaldur, og í Hvíta-Rússlandi gengur lífið sinn vanagang, líkt og enginn heimsfaraldur gangi yfir. Þá grassera falsfréttir, streymisveitur hafa aldrei verið jafn vinsælar og við erum hætt taka í höndina á hvort öðru.

Þá fjallar Bergljót Baldursdóttir um áhrif COVID19 á umhverfið og loftslagsmál. Það er nefnilega svo útbreiðsla veirunnar virðist hafa ansi hreint jákvæð áhrif á umhverfið, enda eru helstu skaðvaldar þess - mennirnir - menga töluvert minna en venjulega. En fer allt aftur í sama farið þegar faraldurinn hefur runnið sitt skeið?

Svo segir Hallgrímur Indriðason okkur frá nýju fótboltaliði Davids Beckham, Inter Miami, sem hóf nýverið leik í bandarísku atvinnumannadeildinni í fótbolta. Þá rekur hann einnig sögu atvinnumannadeildarinnar í Bandaríkjunum, en fótbolti hefur ekki notið mikilla vinsælda vestanhafs. Á því hefur þó verið nokkur breyting síðustu ár, ekki síst vegna Beckhams.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Frumflutt

3. apríl 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,