Heimskviður

202 - Væringar í Suður Kóreu og tímabeltin í Kasakstan

Ótti, reiði og undrun. Einhver þessara tilfinninga, ef ekki allar samtímis, voru allsráðandi í Suður-Kóreu á þriðjudagskvöldið. Noon Suk Yeol, forseti Suður-Kóreu, birtist á sjónvarpsskjám landsmanna klukkan ellefu kvöldi og lýsti þar yfir herlögum. Hundruð hermanna umkringdu þinghúsið og komu í veg fyrir þingmenn kæmust þar inn. Bjarni Pétur Jónsson skoðar baksögu þessara óvæntu atburða og fer með okkur til Suður Kóreu.

Í síðari hluta þáttarins ætlum við til Kasakstan. Þar eru umdeildar breytingar frá því fyrr á þessu ári farnar hafa tilsegjanleg áhrif. Já, í mars fækkuðu yfirvöld í Kasakstan tímabeltum landsins úr tvö niður í eitt, og það þýðir í fjölmennasta hluta landsins dimmir fyrr en áður. Og þegar vetur er skollinn á mega Kasakar ekki endilega við meira myrkri og meiri kulda. Úr sér gengið raforkukerfi landsins er síðan líka sligast undan auknu álagi, sem klukkubreytingin hefur í för með sér. En hvað geta Kasakar gert? Harkað af sér, mótmælt stefnu stjórnvalda eða kannski tekið sér nágranna sína í vesturhluta Kína, Úígúrana, til fyrirmyndar? Oddur Þórðarson fjallar um málið.

Frumflutt

7. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,