Heimskviður

Nick Fuentes og pöndupólitík

Nick Fuentes er kristinn þjóðernissinni og kynþáttahatari og vill hvítir, kristnir karlmenn fari með tögl og hagldir í bandarískum stjórnmálum. Hann hefur sagst vera á móti lýðræði því það steypi saman ólíkum og ósamræmanlegum hagsmunum. Lýðræði leiði alltaf á endanum til þess þjóðríkið bíði óafturkræfan skaða. Hann segist líka elska Hitler, hefur lagst gegn því konur séu útivinnandi, talað vel um aðskilnað svartra og hvítra í Bandaríkjunum og hefur almennt spúið hatri sínu á öllum mögulegu þjóðfélagshópum og trúarhópum.

En mögulega býr eitthvað annað baki því. Hvað þýðir það frægum stjórnmálaáhrifavaldi sama um vera kallaður rasisti, nasisti eða eitthvað annað? Hvað þýðir það einhver skuli storka samfélagslegum normum með þessum hætti og hvað þýðir það þannig málflutningur fái hljómgrunn hjá hundruð þúsundum eða jafnvel milljónum víða um heim.

Svo fjöllum við um pöndupólitík, en það segja pöndur séu krúttlegustu diplómatarnir. Talið er pöndur í heiminum séu um 2.700. Þar af lifa nærri 2.000 villtar í Kína. Kínverjar hafa í áratugi stundað pöndupólitík, ef ríki vilji til sín pöndur þurfi þau vera í góðum samskiptum við yfirvöld í Kína. Og Kínverjar kölluðu til sín tvær pöndur frá Japan í vikunni. Borgaryfirvöld í Tókýó hafa óskað eftir aðrar pöndur í staðinn en þeirri beiðni hefur ekki verið svarað. Ætli svarið velti ekki á því hvernig samskipti Kína og Japans þróast á næstunni?

Frumflutt

31. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,