Heimskviður

199 - Kvennamorð í Bretlandi og síðasti geirfuglinn

Umfangi heimilisofbeldis gegn konum á Bretlandseyjum hefur verið lýst sem neyðarástandi. Talið er tvær milljónir breskra kvenna verði fyrir einhvers konar ofbeldi á ári hverju. Undanfarin ár er meðaltali ein kona drepin þriðja hvern dag á Bretlandseyjum. Blaðamaður hjá Guardian, sem hefur tekið saman upplýsingar um kvennamorð það sem af er ári, segir refsingar við morði innan veggja heimilis séu alla jafna mun vægari en þegar konur eru drepnar á götum úti.

Svo heyrum við af heimsókn Björns Malmquist fréttamanns á belgíska náttúruminjasafnið í Brussel þar sem hann stóð augliti til auglitis við síðasta geirfuglinn, sem talið er hafi verið drepinn í Eldey fyrir rúmum 180 árum - sumarið 1844. Björn talaði við Gísla Pálsson, fyrrverandi prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, sem hefur fjallað ítarlega um sögu og útdauða geirfuglsins. Hann segir geirfuglinn og sögu hans svo mikilvæga því hún sannfærði menn um aldauði af mannavöldum væri stórt vandamál og því þyrfti snúa vörn í sókn.

Frumflutt

16. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,