• 00:00:38Áfengisneysla
  • 00:11:32Rætt við höfund Berit - betri maður
  • 00:17:57Menningarfyrirbærið þorrablót

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Áfengisneysla, nettröllið Berit og þorrablót

Á ríkið að vera með einokun á áfengissölu í forsvarnarskyni og ógnar tilkoma áfengisnetverslana þessu hlutverki ríkisins? Þessi umræða er ekki ný af nálinni en hún hefur verið fyrirferðamikil undanfarna daga. Elías Blöndal Guðjónsson, annar eiganda áfengisverslunarinnar Santé, og Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum hafa skipst á skoðunum með greinaskrifum undanfarið og eru gestir Kastljós.

Hlutirnir eru ekki svart - hvítir og fólk er ekki annað hvort gott eða vont. Ekki heldur fólk sem skrifar hræðilega hluti á internetinu. Þetta segir höfundur norsku þáttanna um nettröllið Berit. Sýningar eru ekki hafnar í sjónvarpinu en þættirnir hafa slegið í gegn í spilara. Við ræðum við höfund þáttanna.

Þorrinn, hinn forni fjórði mánuður vetrar, stendur sem hæst. Af því tilefni flykkjast landsmenn á þorrablót og skemmta sér og öðrum. Siggi Gunnars ákvað að kynna sér menningarfyrirbærið þorrablót nánar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,