Kastljós

Áhrif orkukreppu á Ísland, nýir kjörkassar, Ástin og dauðinn

Heimurinn býr sig undir orkukreppu eftir ein mikilvægasta olíuflutningaleið heims, Hormússund, lokaðist í kjölfar innrásar Bandaríkjanna og Ísrael í Íran. Hvaða áhrif gæti olíukreppa haft á Ísland? Við ræðum við Loga Einarsson, settan orkumálaráðherra, og Sigríði Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins.

Nýir kjörkassar leysa gömlu viðarkassana af hólmi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Nýju kassarnir eru úr plasti og eiga létta kjörstjórnum lífið. Við kíkjum á kassana.

Salka Valka, eins þekktasta bókmenntapersóna Íslands, lifnar við í einleiknum Ástin og dauðinn, sem Unnur Ösp Stefánsdóttir flytur í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Við hittum Unni Ösp.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

1. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,