Kastljós

Dularfullt andlát dragdrottningar, Umhverfisþing og íshokkí barna

Dularfullt andlát íslensk-bandarísku dragdrottningarinnar Heklínu hefur vakið heimsathygli. Hún lést fyrir tveimur árum og vinir hennar og aðdáendur víða um heim vilja svör við spurningunni um hvað kom fyrir hana. Fréttaskýringaþátturinn Þetta helst á Rás 1 hefur fjallað ítarlega um andlát Heklínu. Rætt er við Þóru Tómasdóttur fréttamann í þættinum.

Öll gögn sýna við stefnum útrýmingu heimsins segir Thomas Halliday. Þeir sem haldi öðru fram þekki annað hvort ekki gögnin eða eru ljúga. Thomas var einn ræðumanna á Umhverfisþingi í Hörpu í dag.

Íshokkí veitir börnum nauðsynlega útrás og styrkir sjálfsmynd þeirra, segir íshokkídrottningin Sarah Smiley sem er einn farsælasti þjálfari Skautafélags Akureyrar. Guðrún Sóley heimsótti Söruh á dögunum.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Frumsýnt

15. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kastljós

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,