Harpa Björk og auðgandi landbúnaður
Fyrir nokkrum árum var krabbamein fjarlægur sjúkdómur í huga Hörpu Bjarkar Hilmarsdóttir en í dag er hann stór hluti af lífi hennar. Hún hefur kynnst honum sem barn foreldra með krabbamein,…
Hvernig á að tala um fréttir við börn þegar fréttirnar eru kannski ekkert sérstaklega góðar eða þægilegar? Hrund Þrándardóttir, sálfræðingur og Ari Páll Karlsson, ritstjóri Krakkafrétta á RÚV ræða málið.
Einnig rætt við Ævar Þór Benediktsson, einn af afkastamestu barnabókahöfundum landsins. Hann hefur gefið út næstum því jafn margar bækur og árin sem hann hefur lifað og segist hvergi nærri hættur.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.