Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Þorgerður Katrín um Trump, Venesúela og Grænland

Áhyggjur af því að Donald Trump Bandaríkjaforseti geri alvöru úr orðum sínum um að taka yfir Grænland hafa aukist eftir að bandarísk stjórnvöld rændu forseta Venesúela og fangelsuðu hann. Trump og áhrifafólk innan stjórnkerfisins hafa látið í skína að Grænland sé næst í röðinni. Forsætisráðherra Danmerkur svarar fullum hálsi og leiðtogar á Norðurlöndum lýsa yfir stuðningi við Dani og Grænlendinga. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er gestur Kastljóss en við ræðum líka við Mikkel Runge Olesen,

yfirrannsakanda við Dönsku alþjóðamálastofnunina (DIIS).

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,