Kastljós

Húsnæðispakki tvö, Bocuse d’Or kandídat Íslands og útskriftarsýning í fatahönnun

Ríkisstjórnin og Reykjavíkurborg hafa gert samning um byggðar verði á annað þúsund íbúðir á lóðum og í húsnæði í eigu ríkisins. Þetta er meðal aðgerða í húsnæðismálum sem kynntar voru á fundi í morgun og eru liður í öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Gestur Kastljóss er Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Snædís Xyza Jónsdóttir keppti fyrst kvenna fyrir hönd Íslands í undankeppni alþjóðlegu matreiðslukeppninnar Bocuse d’Or í Frakklandi. Hún komst áfram í úrslitakeppnina sem fer fram á næsta ári og er strax farin undirbúa sig.

Í lok þáttar kynnumst við fatahönnuðum framtíðarinnar, sem sýndu útskriftarlínur sínar úr Listaháskóla Íslands á dögunum.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

28. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,