Við héldum áfram að taka púlsinn á þeim hátíðum sem fram fara um Verslunarmannahelgina sem er fram undan. Í dag hringdum við norður á Akureyri en þar fer fram hátíðin Ein með öllu. Halldór Kristinn Harðarson, einn af Vinum Akureyrar, sagði okkur frá umfangi og undirbúningi hátíðarinnar og við hverju gestir mega búast.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur lagt það til við Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra að víkja Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara tímabundið úr starfi, eftir að hann lét hjá líða að bæta ráð sitt í kjölfar áminningar. Ástæðan eru ummæli vararíkissaksóknara í opinberri umræðu, sem hann hefur viðhaft meðal annars um flóttafólk. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur kom til okkar og ræddi þetta mál.
Vindorkuver voru til umræðu í þættinum í gær, þegar Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur kom og ræddi undirskriftalista sem hópurinn Mótvindur stendur fyrir, þar sem skorað er á ríkisstjórn og Alþingi að heimila ekki stóriðju í vindorku um heiðar, sveitir og strendur landsins. Skorað er á löggjafann að skapa sterkan lagaramma til að vernda orkuinnviði landsins. Þau Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, varaformaður þingflokks Samfylkingarinnar, komu til okkar, en þau eru bæði í umhverfis- og samgöngunefnd.
Og við fengum Björn Berg Gunnarsson til okkar í lok þáttar í fjármálaspjall. Hann ræddi bankareikninga; hvaða bankareikningar henta hverjum og við hvaða aðstæður.
Lagalisti:
Greifarnir - Sumarnótt
The Police - Roxanne
Jamiroquai - Virtual Insanity
Gabriels - One and only
Birkir Blær Óðinsson - Leaders
Mammaðín - Frekjukast
Fleetwood Mac - Rhiannon (Will You Ever Win)
GDRN - Ævilangt