Þáttaröðin Leyniförin á Rás 1 hefur vakið athygli en hún fjallar um leyniverkefni á vegum C.I.A. og bandaríska sjóhersins sem íslendingur, Birgir Þór Helgason, stýrði á árunum 1986 til 1988. Guðrún Hálfdánardóttir, umsjónarmaður þáttarins, leit við til að segja okkur aðeins meira af þessari stórmerkilegu sögu.
Ísland er að fara að keppa á heimsbikarmótinu í pílu eða World Cup Of Darts í lok júní. Einn keppanda þar er Pétur Rúðrik Guðmundsson en hann heldur sérstakt styrktarmót vegna þessa á laugardaginn. Pétur kom til okkar til að segja okkur frá mótinu, pílunni og gríðarlegum uppgangi hennar hérlendis sem og auknum fjölda yngri iðkenda.
Snjallsímanotkun ungs fólks hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu en Akureyrarbær kynnti á dögunum svokallaða símasáttmála í grunnskólum bæjarins sem taka gildi næsta vetur þar sem farsímar verða nær alveg bannaðir í grunnskólum. Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri SAFT – Netöryggismiðstöðvar Íslands kom í heimsókn til okkar til að ræða þessi mál.
Geðsveiflan 2024 er Golf viðburður til styrktar Geðhjálp. Markmiðið er að vekja athygli á geðheilbrigði og mikilvægi þess að stunda íþróttir, útivist og bæta félagslega heilsu. Guðmundur Hafþórsson, sem þekkir starf Geðhjálpar af eigin raun, mun spila golf í 24 tíma á vellinum. Golfklúbburinn Oddur og Golfsamband Íslands hafa tekið höndum saman með Guðmundi í að gera þennan viðburð að veruleika. Guðmundur kom í kaffi.
Svo föóum við yfir fréttir vikunnar eins og venjan er á föstudögum en þau Eva Björk Benediktsdóttir, íþróttafrettakona og Skapti Hallgrímsson, ritstjóri Akureyri.net komu í hljóðver fyrir norðan og fóru yfir hvað bar hæst í vikunni.
Lagalisti:
Helgi Björnsson - Kókos og engifer
David Bowie - China Girl
YG Marley - Praise Jah In the Moonlight
Patti Smith - Because the Night
Jónfrí og Ólafur Bjarki Bogason - Gott og vel
Gummi Haff - No regrets
Foo Fighters - Big Me
Fleetwood Mac - Hold Me
GDRN - Þú sagðir