Við þekkjum það að dáleiðsla er sögð getað hjálpað fólk t.d. að hætta að reykja og til að létta sig. En að nota hana til að takast á við áföll, kvíða og depurð svo eitthvað sé nefnt er eitthvað sem vakti forvitni okkar. Stella Bára Eggertsdóttir er meðferðar dáleiðari sem leitar að uppruna áfalla og hjálpar fólki sem hefur orðið fyrir áföllum í æsku að losa um hamlandi tilfinningar. Hún kemur til okkar til að segja okkur meira hvernig þetta virkar allt saman.
Fasteignafélagið Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði í Kringlubíói á þriðjudaginn. Á sama tíma verður opnuð sýning á drögum að deiliskipulagstillögunni fyrir almenning á jarðhæð í göngugötu Kringlunnar. Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlureits, kemur til okkar í spjall.
Um og yfir 8 af hverjum 10 Íslendingum hafa upplifað vandamál sökum skorts á samkeppni í samanburði við um 6 af hverjum 10 í ESB. Um mitt ár 2023 framkvæmdi Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands könnun að beiðni Samkeppniseftirlitsins um viðhorf almennings til ýmissa þátta tengdum samkeppnismálum. Við ræðum nýkynntar niðurstöðurnar við Val Þráinsson aðalhagfræðing Samkeppniseftirlitsins.
Eva Björk Benediktsdóttir, íþróttafréttakona, fer yfir það helsta í íþróttunum.
Úrslitakvöld Eurovision um helgina var vægast sagt eldfimt og bann EBU við hvers kyns pólitískum skilaboðum kom ekki í veg fyrir að fólk kæmi skoðunum sínum á framfæri -á einn hátt eða annan. Getur slíkt bann aukið enn frekar á skautun sem virðist vera orðin mikil mjög víða? Eiríkur Bergmann ræðir við okkur um Eurovision pólitíkina og skautun.
Tónlist:
GDRN - Háspenna.
Sam Fender - Seventeen Going Under.
David Bowie - China Girl.
Cyrus, Miley, Beyoncé - II MOST WANTED.
Bubbi Morthens - Allur Lurkum Laminn.
Teddy Swims - The Door.