Það er verið að byggja nýjan miðbæ í Mosfellsbæ, en er það hægt? Hvernig fer maður að því að búa til nýjan miðbæ. Það eru ýmsir sem koma að hönnun svæðisins sem er ekki ýkja stórt, og er ofan við þann verslunarkjarna sem þegar er fyrir hendi. Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu gerði deiliskipulag að svæðinu árið 2010, síðan hefur því verið breytt að hluta og þrjár stofur koma að þessum breytingum, en það eru Ólafur Axelsson hjá VA arkitektum, Oddur Víðisson hjá DAP og Páll Gunnlaugsson hjá Ask. Mosfellsbær fékk kaupstaðarréttindi árið 1987, í janúar 2018 voru íbúar rúmlega 10.500 en eins og í öðrum sveitafélögum hér á höfuðborgarsvæðinu stækkar bærinn og það vantar húsnæði, því verða töluvert margar misstórar íbúðir í nýja miðbænum. Tekið er smá rölt um svæðið með Ólafi Axelssyni arkitekt hjá VA arkitektum, og í stúdíói sitja svo Haraldur Sverrisson bæjarstjóri og Bjarki Bjarnason forseti bæjarstjórnar en hann er einn höfunda um sögu Mosfellsbæjar.