Flakk
Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.
Skektuvogur, Trilluvogur, Arkarvogur, Bátavogur, Kuggavogur og Drómundarvogur, og svo torgin: Skutulstorg, Vörputorg, Sökkutorg og Öngulstorg, „Þau eru öll tengd skipum. Margir spyrja sig vafalaust hvar eru þessar götur og torg, jú í nýju hverfi í vogunum, sem hefur fengið nafnið Vogabyggð. Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna borgin skipulagði þetta svæði sem atvinnusvæði á sínum tíma, því þetta er land sem tilvalið fyrir íbúabyggð. Með þéttingu byggðar var því ákveðið á sínum tíma að endurskipuleggja hverfið og byggja íbúðir og jafnframt halda í einhver af þeim fyrirtækjum sem þarna eru, sem ganga vel upp með íbúðabyggð. Hverfið í heild afmarkast af Kleppsmýrarvegi, Sæbraut og Súðarvogi. Í þættinum er rætt við Elías Guðmundsson verktaka og eiganda Sérverks og Ólöfu Örvarsdóttur sviðstjóra Umhverfis- og Skipulagssviðs borgarinnar, farið er í nýja Vogabyggð í fylgd Sigríðar Magnúsdóttur arkitekts, sem er deiliskipulagshöfundur hverfisins og byrjað við nýreista byggingu, sem arkitektar Teiknistofunnar Traðar hönnuðu en Sigríður er einmitt einn af arkitektunum.
Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.