Við fórum yfir nýjustu upplýsingar og stöðuna á gosinu á Sundhnúkagígaröðinni á Reykjanesi með Magnúsi Tuma Guðmundssyni jarðeðlisfræðingi.
Varað var við mögulegri gosmengun sem gæti janvelt teygt sig til Höfuðborgarsvæðisins í dag. Þorsteinn Jóhannsson loftgæðasérfræðingur hjá Umhverfisstofnun fór yfir málið með okkur.
Víðir Reynisson, sviðstjóri hjá Almannavörnum, var á línunni og fór yfir fyrstu verkefni viðbragðsaðila í dag sem verða að skoða skemmdir á innviðum. Rafmagnslaust er í Grindavík eftir að loftlínan var tekin úr rekstri í gær vegna þess að hraun stefndi að henni.
Við hringdum austur á Geysi í Haukadal og forvitnuðumst um framkvæmdir sem þar hófust nýlega. Gera á nýja göngustíga og gönguleiðir meðal annars. Og þá þarf að loka hluta hverasvæðisins á meðan framkvæmdir standa yfir. Við heyrðum í Valdimari Kristjánssyni, sem er sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, og spurðum hann nánar útí þessar framkvæmdir sem og umgegnina við Geysissvæðið almennt.
Sjómannadagurinn í Reykjavík fer fram úti á Granda á sunnudaginn kemur. Sjómannadagshátíðin “Sjóarinn síkáti” sem haldin hefur verið í Grindavík í rúman aldarfjórðung verður á þessu ári við Reykjavíkurhöfn í ljósi aðstæðna í bænum. Elísabet Sveinsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Sjómannadagsins í Reykjavík og Anna Björk Árnadóttir, skipuleggjandi viðburða og eigandi Eventum viðburðafyrirtækis, sögðu okkur aðeins af dagskránni.
Lagalisti:
Friðrik Dór - Bleikur og blár
Steve Miller Band - Abracadabra
Grace Jones - Slave to the Rhythm
Páll Óskar - Stanslaust stuð
Bríet - Rólegur kúreki
Emilína Torrini - Jungle Drum
David Kushner - Daylight
Bubbi Morthens - Simbi Sjómaður