Kvöldfréttir útvarps

Óljóst hver staða dótturfélags Play á Möltu er, Rauði krossin hverfur frá Gazaborg

Skiptastjórar Play telja dótturfélag á Möltu tilheyra þrotabúinu en handhafar skuldabréfa sem gefin voru út með veði í dótturfélaginu telja sig ráða því.

Rauði krossinn hefur hætt starfsemi í Gazaborg tímabundið því ekki er hægt tryggja öryggi starfsfólks.

Rífa á fjölmörg hús í Grindavík samkvæmt tillögum um framtíðarskipulag bæjarins og bannað verður byggja á sprungusvæðum.

Framsóknarflokkurinn bætir við sig fylgi milli mánaða og mælist aftur inni á þingi í nýjum þjóðarpúlsi Gallups.

Tæplega sex af hverjum tíu innflytjendum eru á leigumarkaði og þeir meta andlega heilsu sína verr en innfæddir. Tekjur innflytjenda eru lægri og fjárhagur verri en meðal innfæddra.

Strætóferðum milli Akureyrar og Reykjavíkur verður fækkað úr 26 í 14 á viku um áramótin íbúum á Norðurlandi vestra til angurs.

Frumflutt

1. okt. 2025

Aðgengilegt til

1. okt. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,