Jón Gnarr úr þingflokki Viðreisnar, ASÍ og veðurtjón á Siglufirði
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í dag. Hann er þó enn félagi í flokknum og styður ríkisstjórnina.
Að óbreyttu stefnir í að ótímabundið verkfall flugvirkja Icelandair hefjist á miðnætti. Enn ber talsvert í milli samningsaðila og enginn fundur hefur verið boðaður hjá ríkissáttasemjara. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um inngrip stjórnvalda.
Varnarsamningur Grænlands og Danmerkur við Bandaríkin var undirritaður í New York í dag. Bandaríkin fá að koma sér upp tveimur herstöðvum, en formaður landsstjórnar Grænlands segir að það taki tíma að byggja upp traust almennings.
Fyrstu niðurstöður nýs áhættumats gera að verkum að hægt er að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur húsnæði í bænum. Sviðstjóri almannavarna segir þetta marka jákvæð tímamót.

Fréttir.