Kvöldfréttir útvarps

Landeigendur skora á Múlaþing að hafna áformum um vindmyllur, skólareldar geisa í Evrópu og borgarstjóri boðar til fundar um öryggi.

Landeigendur á Héraði skora á sveitarstjórn Múlaþings hafna áformum um vindmyllur við Lagarfossvirkjun. Forstjóri Orkusölunnar segir umfangsmiklar rannsóknir hafa farið fram og eftir lagabreytingar í sumar líklegt áformin fari líka í gegnum rammaáætlun.

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir vegna skógarelda í námunda við Madríd, höfuðborg Spánar. Á vesturströnd Frakklands hafa tugir þúsunda þurft flýja vegna skógarelda nálægt Bordeaux.

Íbúum Reykjavíkur og atvinnurekendum hefur verið boðið á samráðsfund í Ráðhúsinu á þriðjudag til ræða öryggi í borginni. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir fundurinn til svara ákalli um samráð um öryggismál í borginni.

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur er komin í lag og siglir samkvæmt áætlun. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja segir það mikið gleðiefni.

Kaffistofa Samhjálpar fær vera áfram í húsnæði Fíladelfíusafnaðarins út ágúst. Kaffistofan varð húsnæðislaus í október í fyrra þegar húsnæði hennar við Borgartún var rifið.

Umsjónarmaður: Hugrún Hannesdóttir Diego.

Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Birt

24. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,