Eldsvoði á Stuðlum til héraðssaksóknara og rannsókn á sýkingu á Mánagarði hætt
Rannsókn lögreglu á eldsvoða á Stuðlum, þar sem 17 ára piltur lést, er komin til héraðssaksóknara. 12 eru með réttarstöðu sakbornings, grunuð um manndráp af gáleysi.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Hann fengi 31 prósent og átta borgarfulltrúa, Samfylkingin kæmi næst með 21,5% og fimm fulltrúa. Hægt væri að mynda meirihluta til hægri verði úrslit kosninganna á þessa lund.
Gerviaðgangar, svokallaðir bottar, hafa farið mikinn á Facebook-síðu Viðreisnar undanfarinn sólarhring. Viðreisnarfólk segir þá ekki á sínum vegum.
Innviðaráðuneytið hefur ógilt kosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps á Ströndum. Athugasemdir voru gerðar við aðgengi að kjörstöðum.
Kynferðislegu ofbeldi og pyndingum er beitt í auknum mæli í stríðsátökum í heiminum. Amnesty International segja mikilvægt að draga gerendur til ábyrgðar

Fréttir