Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir 5. apríl 2026

Samgöngur verða úr skorðum á morgun vegna óveðurs. Fólk sem hyggur á ferðalög er hvatt til fylgjast vel með áður en lagt er af stað.

Kvöldopnun verður á skíðasvæðinu í Oddsskarði á Austurlandi. Illa hefur gengið halda skíðasvæðinu opnu yfir páskana vegna snjókomu.

Þingmaður Miðflokksins vill auka niðurgreiðslur ríkisins vegna flugfargjalda barna sem þurfa ferðast á milli landshluta til forráðamanna. Hann segist þekkja dæmi um börn verði af umgengni við foreldri vegna kostnaðar við flug.

Stálþráður, með upphaflegri hljóðrás myndarinnar um Björgunarafreksið við Látrabjarg, finnst nýverið í fórum Þjóðskjalasafns Íslands eftir hafa verið talið glatað í áratugi.

Birt

5. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,