Eldsvoði á Stuðlum til héraðssaksóknara og rannsókn á sýkingu á Mánagarði hætt
Rannsókn lögreglu á eldsvoða á Stuðlum, þar sem 17 ára piltur lést, er komin til héraðssaksóknara. 12 eru með réttarstöðu sakbornings, grunuð um manndráp af gáleysi.
Utanríkisráðherra segir Atlantshafsbandalagið farsælt fyrir öll aðildarríkin - þar á meðal Bandaríkin. Bandaríkjaforseti segist íhuga alvarlega að draga Bandaríkin úr NATÓ.
Donald Trump segist hafa rætt við Írani um vopnahlé, en þar á bæ kannast enginn við slíkar viðræður.
Það styttist í stórar ákvarðanir um uppbyggingu iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes. Stórskipahöfn er enn á teikniborðinu.

Fréttir