Farið og sækið ykkar eigin olíu, eru skilaboð Bandaríkjaforseta til ríkja, sem nú glíma við orkuskort vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna útilokar ekki enn landhernað í Íran.
Erlendir leigjendur borga fjórtán prósent hærri leigu en innlendir leigjendur þrátt fyrir að velja sér að jafnaði smærri íbúðir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu HMS um stöðuna á leigumarkaði.
Engin merki eru um að eldgosahrinu á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka þrátt fyrir hæga kvikusöfnun og langt goshlé. Kvikuhlaup og eldgos eru enn líklegasta sviðsmyndin.
97 ára gamall maður sem flutti í gær í nýtt hjúkrunarrými í Urðarhvarfi lætur vel af nýju heimili og segist sofa þar eins og engill. Tugir aldraðra flytja þangað á næstu dögum og vikum og þannig verður létt á vanda bráðamóttöku.