Bandaríkin líklega ábyrg fyrir árás á stúlknaskóla
Greiningar á myndum og myndskeiðum af árás á stúlknaskóla í Íran þar sem minnst 165 voru drepin benda til þess að Bandaríkin hafi verið að verki.
Umræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna héldu áfram í dag. Fjölmargir eru enn á mælendaskrá og útséð að umræðan klárast ekki fyrr en í næstu viku.
Íslensk kona sem var rænd á Tenerife um helgina segist hafa óttast um líf sitt. Maður veittist að henni, reif af henni hálsfesti og hljóp í burtu. Hún ætlar ekki að kæra málið til lögreglu.
Yfirlæknir sérnámsgrunnslækna á Landspítala segir skort á íslenskukunnáttu helstu ástæðu þess að erlendir læknar sem hingað komi fái ekki starf innan heilbrigðiskerfisins.