Rannsaka verði meint brot á Múlaborg, vandi LSH og lögmaður um bætur vegna Bakkakots
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður taka aftur til rannsóknar tvö kynferðisbrotamál vegna meintra brota fyrrverandi starfsmanns leikskólans Múlaborgar. Foreldrar fjögurra barna kærðu niðurfellingu mála til Ríkissaksóknara.
Stjórnendur á Landspítalanum leggja til að hjúkrunarheimili taki strax við fjörutíu til fimmtíu manns og tvímenni jafnvel í herbergi til að bregðast við vanda spítalans.
Lögmaður manna sem segjast hafa verið beittir ofbeldi á fósturheimilinu Bakkakoti segir að þeir ættu að fá bætur þótt lög um sanngirnisbætur séu ekki lengur í gildi.
Karlmaður í Belgíu, sem framvísaði falsaðri kvittun við vændiskaup, hlaut í dag þriggja ára dóm fyrir nauðgun. Það er í fyrsta sinn sem sakfellt er fyrir nauðgun í slíku máli.