Kvöldfréttir útvarps

Strætó til Keflavíkurflugvallar, kosningar í Bandaríkjunum, heimilisofbeldi og óvænt barnsfæðing

Vegagerðin segir þörf á stefnumarkandi ákvörðunum og fjármagni til bæta þjónustu Strætó við Keflavíkurflugvöll. Hún geti ekki tekið þátt í útboði, líkt og forstjóri Isavia lagði til.

Þolendur heimilisofbeldis eru líklegri til finna fyrir einkennum kvíða og þunglyndis en aðrir. Fimmtungur kvenna og tíundi hver karlmaður hafa verið beitt heimilisofbeldi samkvæmt nýrri rannsókn.

Það fjölgaði óvænt um einn í fjölskyldu í Mosfellsbæ í síðustu viku - án þess nokkur hefði haft hugmynd um barn væri á leiðinni.

Rússar segjast hafa umkringt úkraínska hermenn í Pokrovsk í Donetsk-héraði. Úkraínumenn neita því en segjast veita árásum mótspyrnu. Nái Rússar Pokrovsk aukast líkur á þeir leggi undir sig Donetsk-hérað.

Og Sýn hefur dregið úr FM-útsendingum á landsbyggðinni, á útvarpstíðni sem áður tilheyrði Exinu níu sjö sjö og Léttbylgjunni heyrist ekkert utan höfuðborgarsvæðisins.

Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Frumflutt

5. nóv. 2025

Aðgengilegt til

5. nóv. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,