Kvöldfréttir útvarps

Ekki frekari uppsagnir fyrirhugaðar hjá Icelandair

Þrjátíu og átta starfsmönnum var sagt upp hjá Icelandair í dag. Forstjórinn segir öllum steinum hafi verið velt við en frekari uppsagnir séu ekki á dagskrá.

Forsendur fjárlaga eru brostnar segja þingmenn stjórnarandstöðunnar í fjárlaganefnd. Fjármálaráðherra segir hvorki þörf á auknum niðurskurði skattahækkunum.

Lögreglan fékk ekki heimild til þess í sumar fylgjast með íbúðarhúsnæði í grónu hverfi í Reykjavík þar sem hún vissi færi fram vændi. Sviðsstjóri ákærusviðs segir það hafa verið vonbrigði.

Siðaráð norska olíusjóðsins gefur tímabundið ekki tilmæli um fjárfestingar, samkvæmt tillögum sem norska þingið samþykkti í dag. Siðareglur sjóðsins eru í endurskoðun.

Karl bretakonungur sló fótboltamanninn David Beckham til riddara í dag fyrir störf í þágu íþrótta og góðgerðarstarfa. Beckham segist aldrei hafa getað ímyndað sér það myndi gerast.

Frumflutt

4. nóv. 2025

Aðgengilegt til

4. nóv. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,