Kvöldfréttir útvarps

Hundruð milljóna fjársvik vegna kerfisgalla og Miðflokkurinn bætir við sig fylgi.

Hundruð milljóna króna voru sviknar út úr fjármálastofnunum vegna kerfisgalla hjá Reiknistofu bankanna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið.

Miðflokkurinn eykur fylgi sitt um nærri fimm prósentustig á milli mánaða, í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Samfylking dalar, sem og Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur ekki verið minni á kjörtímabilinu.

Forseti Lettlands hefur sent lög um landið dragi sig úr Istanbúl-sáttmálanum aftur til þingsins. Sáttmálinn krefst þess aðildarríki þrói lög og stefnu sem miða því binda enda á heimilisofbeldi og ofbeldi gegn konum.

Deilt var um húsnæðisaðgerðir ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag.

Kosningaeftirlitsmenn í Tansaníu efast um forsetakosningarnar þar á miðvikudag hafi farið eðlilega fram. Sitjandi forseti, sem var settur í embætti í dag, fékk tæp 98% atkvæða.

Frumflutt

3. nóv. 2025

Aðgengilegt til

3. nóv. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,