Kvöldfréttir útvarps

Bilun í Norðurái, Sundabraut, spilafíkn og embættismenn

Óvíst er hve langan tíma tekur koma starfsemi í álverinu á Grundartanga í samt lag eftir bilun í rafbúnaði. Bilunin er áfall fyrir nærsamfélagið, segir bæjarstjóri Akraness.

Fullt er út úr dyrum á kynningarfundi Vegagerðarinnar um Sundabraut, í stærsta bíósalnum í Egilshöll. Skiptar skoðanir eru hjá Grafarvogsbúum um framkvæmdina.

Spilafíknarráðgjafi segir úrræði í boði fyrir spilafíkla. Bæði stjórnvöld og almenningur átti sig illa á umfangi og alvarleika vandans.

Lagt er til dregið verði úr áhrifum ráðherra á skipun æðstu embættismanna. Í nýrri skýrslu segir ráðherrar hafi hvergi jafnmikið um málið segja og á Íslandi.

Ferðamenn og aðrir safngestir voru ánægðir komast inn á Louvre-listasafnið í París í morgun. Safnið var opnað í dag í fyrsta sinn eftir ránið á sunnudag.

Umsjón: Erla María Markúsdóttir og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Markús Hjaltason

Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Frumflutt

22. okt. 2025

Aðgengilegt til

22. okt. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,