• 00:03:09Orðskjálfti
  • 00:16:41Hnífurinn - Salman Rushdie

Bara bækur

Hnífur, Salman Rushdie og Orðskjálfti

Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness hafa verið afhent í fjórða skiptið og þessu sinni var það Salman Rushdie sem tók á móti þeim við hátíðlega athöfn í Háskólabíó. Rushdie er stórstjarna meðal rithöfunda hins enskumælandi heims. Nýjasta bók hans kom út fyrr á þessu ári Knife eða Hnífur: Hugleiðingar í kjölfar morðtilraunar þar sem hann lýsir lífshættulegri hnífaárás sem hann varð fyrir árið 2022. Þetta er í senn sjálfsævisaga og hugleiðing um dauðann, listina og hamingjuna. Við ætlum rýna í þessa bók með Guðmundi Andra Thorssyni og Margréti Tryggvadóttur.

Orðskjálfti heitir stórt norrænt ljóðaverkefni þar sem ungir ljóðaunnendur í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Íslandi velja það besta í ljóðagerð hvers lands og birta saman í úrvali. Sólin sem sefur og stóri eldfugl eru tvær nýjustu bækurnar, þriðja og fjórða bindið í seríu undir regnhlíf Orðskjálfta og taka þær fyrir árin 2022 og 23. Unnar Ingi Sæmundarson og Ása Þorsteinsdóttir sátu í sitthvorri nefndinni og segja okkur frá þessu viðamikla verkefni, velja bestu ljóðin.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Frumflutt

14. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,