Bara bækur

Í skugga trjánna og Næstsíðasta líf Jens Ólafssonar Olsen

Við byrjum á fara í heimsókn til Guðrúnar Evu Mínervudóttur sem var gefa út skáldsöguna Í skugga trjánna - skáldævisögu í anda Skeggs Raspútíns sem kom út árið 2016. Guðrún tekst í nýju bókinni á við veruleikann og úr verður skáldleg og djúpvitur úrvinnsla sem er bæði áhrifamikil og þrælfyndin.

Svo hittum við Braga Pál Sigurðarson í þröngu húsasundi og spyrjum hann hvers vegna hann er upptekinn af meltingarfærum mannsins. Næstsíðasta líf Jens Ólafssonar Olsen er skáldsaga sem fjallar um mann sem býr við hrakandi heilsu og slæma magaflóru. Í örvæntingu sinni gerir hann allt til rétta úr kútnum og finnur til þess óhefðbundnar leiðir sem hafa óvæntar afleiðingar.

Viðmælendur: Guðrún Eva Mínervudóttir og Bragi Páll Sigurðarson.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Frumflutt

30. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,