Bara bækur

Köngurváfa og Mánahjörð

Tvær ljóðabækur reka á fjörur okkar í þætti dagsins. Ein er frá því í vor, hin er haustbók sem kom út um það leyti sem almyrkvinn umtalaði á sólu reið hér yfir. Bækurnar eiga sitthvað sameiginlegt, þær draga báðar fram myndir úr fortíðinni þar sem leitað er í æskuminningarnar og báðar hafa þær geyma ljóð sem bregða á náttúruna nýrri birtu eða framandgera það sem alla jafna telst hversdagslegt og bæði skáld blanda saman raunsæi og fantasíu. Titlar beggja eru sóttir í fortíð, glataða menningu eða orðaforða sem tengir þær við hið goðsagnakennda. Þetta eru ljóðabækurnar Mánahjörð eftir Kára Tulinius og Köngurváfa eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Við ætlum hitta bæði skáldin í þætti dagsins, heyra ljóð úr bókunum og spjalla um kveðskapinn.

Viðmælendur: Kári Tulinius og Arndís Þórarinsdóttir.

Birt

29. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,