Bara bækur

Hulduhöfundurinn Akörn

Það læddist bók inn á sviðið í vikunni; dularfull, stutt skáldsaga sem heitir Páfagaukagarðurinn og hefur valdið bókafólki heilabrotum því höfundurinn, Akörn, er huldumaður. Eintök af bókinni eru fá, nokkrir útvaldir úr bókmenntasenunni fengu senda bók. Þeir fengu nafnlausan Páfagaukagarð í pósti. Og eitt var sent á Skálda bókabúð. Þar er eintakið til sölu fyrir litlar 30 þúsund en verður þó til sýnis í þrjá mánuði þótt það búið selja hana.

En Hver er Akörn? Skiptir það máli, er ekki höfundurinn dauður og lesandinn á lífi? Er þetta allt úthugsað háð sem beinist fámennri menningarelítu eða er þetta markaðsstönt? Hvernig koma Mexíkó, ljóð Gyrðis Elíassonar og Alvotech við sögu? Við Tómas Ævar Ólafsson rannsökuðum málið.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Tómas Ævar Ólafsson.

Frumflutt

14. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,