Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan
Við blöðum í nýútkominni skáldsögu, Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson. Það er saga af íslenskri samtímafjölskyldu sem er enn að kljást við afleiðingar af sárum missi í fjölskyldunni…
Við verðum með verðlaunagripi á lofti í þættinum, það er ýmislegt í íslenskum bókmenntum sem hefur verið verðlaunað á síðustu viku. Fyrir örfáum dögum voru Fjöruverðlaunin veitt, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára og í lok febrúar voru þýðingarverðlaunin afhent. Við förum yfir þær bækur sem voru verðlaunaðar að þessu sinni og heyrum brot úr umfjöllun Rásar 1 um bækurnar.
Viðmælendur: Maó Alheimsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Áslaug Agnarsdóttir.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.