Bara bækur

Drengur les sér til gagns

Við bókagrúsk í Bókakaffinu í Síðumúla hitti Jóhannes Ólafsson fyrir feðga sem spjölluðu saman og skoðuðu gamlar bækur. Drengurinn, ekki eldri en 12 ára, gekk út með Glæp og refsingu eftir Fjodor Dostojevskí undir hendinni. Það kom á daginn þessi kornungi bókaormur er djúpt sokkinn í lestur heimsbókmennta og bókasöfnun. Röð tilviljana leiddu til þess Jóhannes og drengurinn, Gabríel Haukur, hittust aftur og ræddu bókmenntir og lestur ungra drengja fyrir þáttinn Bara bækur. Það heyrast gjarnan fréttir um ungir drengir séu þjóðfélagshópur sem geti varla lesið sér til gagns. Í Bara bókum verður skyggnst inn í stöðu læsis á Íslandi og rætt við unga heimsbókmenntamanninn Gabríel sem hefur fyrir 12 ára aldur lesið verk eftir Victor Hugo, George Orwell, John Steinbeck og Mary Shelly.

Birt

11. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,