Bara bækur

Örforlög á Norðurlöndum, Una sameinast Benedikt og Stjörnufallseyjur

Fjallað er um prósaverkið Stjörnufallseyjur eftir Jakub Stachowiak. Draumkennd frásögn um söknuð og sorg sem dregur fram andstæður í hverfulum heimi. Líkamar skjálfa, borgir verða lófum, hornlausir einhyrningar birtast og gamlar konur baða sig við ljósið í myrkrinu. Marta María Jónsdóttir myndlýsti bókina og Jakub segir okkur allt um verkið í lok þáttar.

Við hugum líka bókaútgáfu og það sérstökum kima hennar útgáfur sem flokkast sem örforlög. Ana Stanichevic sem hefur um árabil kennt við íslensku og menningardeild Háskóla Íslands hefur nýlega lokið doktorsprófi frá skólanum en hún rannsakaði örforlög á Norðurlöndum, aðallega hér á Íslandi og Danmörku. Hún segir okkur frá skilgreiningum og einkennum slíkra útgáfa.

Einar Kári Jóhannsson hefur fengist við bóksölu, ritstjórn og útgáfu um nokkurt skeið. Útgáfa sem hann kom stofnun, Una útgáfuhús náði góðu flugi fyrir nokkrum árum sem flokka sem örútgáfu en hefur sameinast öðru stærra forlagi, Benedikt. Einar Kári segir okkur frá tilurð þess og hugsjónum nýsameinaðs Benedikts.

Viðmælendur: Ana Stanicevic, Einar Kári Jóhannsson og Jakub Stachowiak.

Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, Fall - Sigur Rós.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Frumflutt

28. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,