Bara bækur

Fiskur í vatni: Mario Vargas Llosa og skáldskapur og þýðingar Þórs Stefánssonar

Þór Stefánssonar hefur reglulega gefið út ljóðbækur frá árinu 1989 og tuttugasta kom út fyrir skemmstu, Sjálfsagðir hlutir og hæpnar fullyrðingar. En fyrir utan vera afkastamikið skáld er Þór ekki síður þýðandi og hafa tugir bóka með ljóðaþýðingum eftir hann komið út, oft frá forvitnilegum og framandi slóðum. Þetta eru yfirleitt ljóð úr frönskumælandi svæðum heimsins og einnig úr sænsku. Þá hefur Þór einnig verið þýddur og gefinn út erlendis. Þór Stefánsson skáldið og þýðandinn er sjálfstæð eining í ljóðsenu Íslands og hefur nær allar götur staðið í sjálfsútgáfu. Hann segir sífellda þörf fyrir yrkja og færa tilveruna í ljóð það sem knúi hann áfram, þetta eins og hvert annað áhugamál. og þessu tilefni, ljóðabækurnar eru orðnar 20 talsins - fannst mér kominn tími á Þór hingað í hljóðver og spyrja hann út í allt saman.

Perúski rithöfundurinn Mario Vargas Llosa var skáldsagnahöfundur, ljóð- og leikskáld og einn áhrifamesti rithöfundur sinnar kynslóðar frá Rómönsku-Ameríku. Hann vakti fyrst verulega athygli á fyrri hluta sjöunda áratugarins og árið 2010 hlaut hann bókmenntaverðlaun Nóbels. Eftir hann liggja tugir skáldsagna, leikrita og greinasafna og verk hans hafa verið þýdd á fjölda tungumála, meðal annars íslensku. Auk ritstarfa var Vargas Llosa alla tíð virkur í stjórnmálum, var framan af mikill vinstri maður en snerist síðan. Árið 1990 bauð hann sig fram til forseta í Perú fyrir bandalag mið- og hægri flokka. Vargas Llosa lést í apríl síðastliðnum 89 ára aldri. Árið 2015 gerði Hermann Stefánsson rithöfundur útvarpsþáttinn Fiskur í Vatni um rithöfundinn Vargas Llosa og tók viðtal við höfundinn. Við ætlum hefja þáttinn á hlusta á hluta úr þessum þætti.

Viðmælendur: Álfrún Gunnarsdóttir, Mario Vargas Llosa og Þór Stefánsson.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Frumflutt

31. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,