• 00:00:48Sprenging í dvalarleyfum sérfræðinga
  • 00:10:19Vildi að saga þeirra yrði sögð
  • 00:18:06Íslensku tónlistarverðlaunin

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Atvinnuleyfi og mansal, Morð í Dillonshúsi, Íslensku tónlistarverðlaunin

Í síðustu viku var víetnamski kaupsýslumaðurinn Quang Lé, ásamt fleirum, handtekinn í lögregluaðgerðum vegna stórfelldrar mansalsrannsóknar. Á síðasta ári fengu 115 Víetnamar dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli sérfræðþekkingar samanborið við 51 árið þar á undan. Lang stærsti hópurinn fékk hins vegar dvalarleyfi sem aðstandendur sérfræðinga eða 222 einstaklingar. Árið 2022 voru þeir 89. Rætt við fulltrúa útlendinga- og vinnumálastofnunar um atvinnuleyfi og mansal.

Stærsta og eitt þekktasta morðmál Íslandssögunnar eru morðin í Dillonshúsi þar sem maður myrti eiginkonu sína og þrjú börn og svipti sig svo lífi í kjölfarið. Í samnefndri bók sem kom út fyrir stuttu segir Sigríður Dúa Goldworthy sögu móðursystur sinnar og barna fram að atburðinum en einnig sögu ömmu sinnar.

Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í kvöld. Kastljós hitaði upp frá Hörpu og ræddi við tónlistarfólkið GDRN og Fannar Inga Friðþjófsson.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,