Jón Steingrímsson og kolakláfar 1
Jón Steingrímsson var sonur Steingríms Matthíassonar sem margoft hefur komið við sögu í Frjálsum höndum. Hann reyndist ekki vera síður skemmtilegur minningahöfundur en faðir hans þegar…
Ingjaldur Nikulásson ritaði ævisögu Reinalds Kristjánssonar pósts á Vestfjörðum, sem komu út í bókinni Á sjó og landi árið 1932. Þessi ævisaga er lítt þekkt en ansi mögnuð og lýsingar Reinalds á uppeldi sínu eftirminnilegar og átakanlegar. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.