Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Úkraínumaðurinn Viktor Kravténko kom síðast við sögu í Frjálsum höndum haustið 2024 en þá var hann orðinn forkólfur í iðnframleiðslu þeirri sem stjórn Stalíns hrinti af stokkunum á fjórða áratug síðustu aldar. Á ýmsu gekk í iðnvæðingunni en jafnframt færðist ofsóknaræði Stalíns í aukana. Og árið 1936 hófust nýjar "hreinsanir", grimmari en nokkru sinni fyrr.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.