Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Enski náttúrufræðingurinn og rithöfundurinn Gerald Durrell (1925-1995) skrifaði æskuminningar um undir nafninu Fjölskylda mín og fleiri dýr. Þar lýsir hann á bráðskemmtilegan hátt lífi fjölskyldu sinnar á grísku eyjunni Korfu er hann var 10 ára. Þar koma dýr mjög við sögu en einnig litríkt mannlíf, því mjög gestkvæmt var hjá fjölskyldunni.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.