Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Líkt og umsjónarmaður hafði áður lesið úr fyrstu smásögum Edgars Allans Poes og Antons Tsékovs er birtust á íslensku, þá leitar hann nú hófanna í smásagnasöfnum Williams Somersets Maughams (1874-1965) en hann var einhver vinsælasti rithöfundur heims á fyrri hluta 19. aldar og sérlega rómaður fyrir smásögur. Hér eru tvær sögur sem eru dæmigerðar fyrir Maugham, ein fislétt skemmtisaga og önnur sem getur nöturlega mynd af þjónum breska heimsveldisins.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.