Æska Svetlönu Stalín 3 - Hörmuleg brotthvarf móður hennar
Eftir fjögurra ára hlé gluggar umsjónarmaður aftur í æskuminningar Svetlönu, einkadóttur Stalíns, einræðisherra Sovétríkjanna. Hér segir einkum frá því þegar Svetlanda missti móður…
Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson er orðin hin eina sanna jólasaga Íslendinga en þar er byggt á frásögn af eftirleit sem Benedikt Sigurjónsson (Fjalla-Bensi) fór í 1925. Í þessum þætti er lesin sú frásögn eftir Þorgeir Jónsson í Eimreiðinni sem Gunnar byggði á og sagt bæði frá Fjalla-Bensa og viðtökum þeim er Aðventa fékk.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.